Heimasíðan mín

Ef ég gæti bara lýst henni

20.12.2011 10:44

Ótitlað

Sæl öll

Já ætli það sé ekki kominn tími á smá pistil. 
Jæja sýkingin sem Óli fékk gekk yfir og þurfti hann bara sýklalyf í æð í hálfan mánuð. Svo fékk hann eina þvagfærasýkingu en við erum löngu hætt að kippa okkur upp við þær. Já svona í það heila hefur drengurinn verið mjög hress. Hann er loksins búinn að fá nýjan hnapp sem nær ofan í mjógirnið svo nú ælir hann ekki næringunni og lyfjunum sínum. En það gekk nú ekki alveg þrautarlaust skal ég segja ykkur. Hnappurinn er settur í í svæfingu og magaspeglun og hvað haldið þið að hafi gerst? Jú hann tapaði framtönnunum!!!! Þær eru reyndar ansi lélegar eftir öll uppköstin og allt kalk vesenið sem hefur hrjáð drenginn. Við ákváðum að taka Pollýönnu stílinn á þetta enda voru þetta hvort eð er bara barnatennurnar og það koma nýjar emoticon 

Nú hefur drengnum mínum farið ansi mikið og hratt fram að undanförnu og ætla ég aðeins að monta mig emoticon. Hann er farinn að mjaka sér áfram á rassinum!!!!! Hann var farinn að geta snúið sér í hring þegar hann sat á rassinum en svo ákvað hann að fara af stað. Hann byrjaði nú aðeins að reyna það þegar hún Valgerður nemi var hjá Helgu sjúkraþjálfaranum hans. Hann sá sko ekki sólin fyrir henni Valgerði og hann saknar hennar svolítið ennþá en nú er hún í skólanum. Hann er allur að styrkjast og nú er hann að æfa sig í að vera á fjórum fótum af því hann ætlar að læra að skríða segja hann og Helga. Hann getur verið á fjórum fótum í smá pínu stund án stuðnings.Svo þarf maður að læra að koma sér upp á fjóra fætur og niður aftur. Nú getur hann alveg átakalaust velt sér upp á hliðarnar og yfir á bakið af maganum. Já það er kannski stærsta fréttin að hann fæst til þess að vera á maganum emoticon Hann getur sest upp sjálfur ef hann liggur á vinstri hlið en sú hægri er ennþá og verður örugglega alltaf aðeins veikari. Hann þarf smá stuðnig við að setjast upp frá hægri hlið. Hann styrkist alltaf meira og meira í höndunum en það er hjólastólarallýinu að þakka. Honum finnst ég heldur leiðinleg þegar ég skammta honum tíma í stólnum en hann kann sér ekki alveg hóf í honum. Hann hefur alveg gert út af við sig í honum og mun örugglega gera það aftur. Já gott fólk það er margt sem maður þarf að passa upp á. Svo er hann allur að stækka og þyngjast. Hann lengist og höfuðmálið stækkar en það er mikilvægt svo heilinn fái pláss til að stækka. Hann talar allan daginn. Svona eins og Róbert gerði og gerir. Hann fór í málþroskapróf um daginn hjá henni Sigrúnu Grendal frænku okkar en hún vinnur á greiningarstöðinni. Hann kom mikið betur úr því en ég reiknaði með. Hann fylgir nokkuð sínum aldri í málskilningi en er aðeins á eftir í tali eða svona eins og tveggja og hálfs árs börn. Ég var mjög ánægð með það þar sem ég hélt hann væri ekki svona fær. Við fengum fullt af góðum ráðum og punktum til að vinna með. Hann fer líka til hennar Þórönnu þroskaþjálfa og það sem honum hefur farið fram. Hann er alveg hættur að henda dótinu í hana þegar hann vill ekki gera það sem hún biður um. Hann er til í að skiptast á dóti og leika við hana. Fyrst vildi hann ekkert gera nema leika með bíla en núna fær hann að leika með þá ef hann hefur verið samvinnuþýður og unnið vel í tímanum. Ég gæti haldið endalaust áfram að monta mig af honum. Þið trúið því ekki hvað honum fer mikið fram emoticon

Svo í lokin kemur ein bón til ykkar elskurnar mínar. Vilduð þið vera svo væn að kjósa litla drenginn minn sem hetju ársins í dv? www.dv.is/hetjaarsins. Hann hefur staðið sig með eindæmum vel þessi elska og á allt gott skilið. Hann gæti unnið spjaldtölvu sem hann hefur heilmikið gagn af. Elskulegu englarnir okkar á skilunardeildinni útnefndu hann sem hetju ársins. Þær eru yndislegar konur sem vilja sínum sjúklingum aðeins það allra besta og leggja sig sko alveg hundrað prósent fram við alla umönnun. Án þeirra væri þetta allt mikið erfiðara. Takk fyrir elskurnar okkar.
Ásrún og Óli

10.11.2011 14:47

Ótitlað

Takk fyrir allar kveðjurnar
Drengurinn er nokkuð hressari í dag. Hann er búinn að vera hitalaus í allan dag og allt gengið nokkuð vel. Þurftum reyndar að bíða og bíða eftir að leggurinn væri tekinn en það var smá misskilningur í gangi. En hvað um það. Það gekk með eindæmum vel að taka legginn. Já það gekk svo vel að Kristján sagði að það hefði varla þurft að svæfa hann en þeir þorðu nú ekki annað þar sem hann er svo ungur litli þrjóturinn. Svo er smá umræða í gangi um hvenær eigi að setja nýjan legg. Sumir (lesist Viðar í útlöndum) vilja drífa legginn í á laugardaginn allra síðasta lagi á sunnudaginn. Aðrir vilja nú bíða fram á mánudag en sjáum bara til. Það vill svo heppilega til að Kristján er á vakt um helgina svo við erum góð. Ólafur Karl fær þá ósk sína uppfyllta en hann hreinlega heimtaði að fá að fara aftur inn á skurðstofu og blása meira þegar hann vaknaði. Blása þýðir nú að anda svæfingarlyfjunum að sér í maskanum. Vanur maður hér á ferð. Hann var að segja Gísla svæfingarlækni til inn á skurðstofu alveg þar til hann datt út. Nú ætla ég að taka áhættuna á að hljóma gömul og segja ykkur frá því að ég man þá tíð þegar maður fékk ekki að fylgja barninu sínu inn á skurðstofu LSH við Hringbraut. Þá kvaddi maður barnið með tárin í augunum á undirbúningi fyrir svæfingu. Reyndar var honum yfirleitt sléttsama þar sem hann var vanalega fullur af lyfjum. Aftur á móti hef ég alltaf fengið að fylgja honum inn á skurðstofu í Fossvoginum og verið hjá honum þar til hann er sofnaður. Þá fór maður líka alltaf með tárin í augunum fram til að bíða en af tvennu illu þá held ég að mér þyki betra að fylgja honum inn. Aumingja Óskar þarf alltaf að bíða frammi af því ég er svo frek og vil ekki skiptast á. 
Svo skilst mér að á morgun eigi hann að fara í ómun á hjarta til að sjá hvort sýkingin sé nokkuð komin þangað. Leggurinn liggur í æð við hjartað svo það verður að athuga það. Það hafa sem sagt ræktast stafílóbakteríur (kann ekki að stafsetja þetta) í blóðsýnunum hjá honum og sýklalyfin sem hann var settur strax á virka vel við þeim. Ef allt gengur að óskum þá getur hann fengið lyfin í bumbuna í kvöld eða á morgun. Já þetta er sem sagt það sem er að frétta í dag. Meira seinna og vonandi bara góðar fréttir.
kv Ásrún

09.11.2011 18:21

Ótitlað

Sæl öll

Enn á ný erum við á kunnuglegum slóðum. Ólafur Karl var lagður inn í gærdag þar sem hann ákvað að það væri allt í lagi að fá þvagfærasýkingu og sýkingu í BLÓÐIÐ. Já blóðskilunarleggurinn hans er sýktur því nú "$%$%$## verr og miður. Hann rauk upp með hita í gær og auðvitað voru tekin alls konar sýni í ræktun og þetta eru sem sagt fyrstu niðurstöður. Svo verður leggurinn tekinn í svæfingu í fyrramálið og þá verður vonandi hægt að komast fyrir þessa sýkingu. Nú krossleggjum við fingur og biðjum til Guðs og vonum það besta ekki satt? Sýklalyf í æð í einhverja daga og vonandi verður svo hægt að setja nýjan legg fljótlega. Hann átti sem sagt eftir að prufa þetta en okkur finnst það nú algjör óþarfi hjá drengnum. Það er alveg merkilegt hvað honum dettur í hug að ná sér í og helst þegar Viðar er ekki í vinnu. Ætli hann sé ekki hræddur um að fá skammir frá honum. En hvað um það þá eru þetta svona helstu fréttir í augnablikinu svolítið snubbótt og stutt en vona að þið fyrirgefið það. 

Ásrún og Óli lasni

30.10.2011 11:23

Ótitlað

Góðan dag gott fólk

Fimmtudaginn 13.október síðastliðinn var enn einu sinni skipt um blóðskilunarlegg hjá drengnum. Jæja ætli það sé ekki óhætt að segja að það hafi ekki gengið alltof vel. Það er alltaf tekin röntgenmynd af leggnum eftir aðgerð til að sjá hvernig hann liggur og hvort það sé ekki allt í lagi. Já það kom sem sé í ljós að hann var ekki á góðum stað og því þurfti að svæfa drenginn aftur og laga legginn. Það gekk nú sem betur fer vel. Það þurfti aðeins að vökva drenginn þar sem hann hafði nú fastað frá miðnætti en seinni aðgerðin var klukkan hálfsex seinnipartinn. Við gistum eina nótt á sjúkrahúsinu hjá yndislegu stelpunum þar enda var verið að vökva krakkann. Ég verð nú aðeins að monta mig af honum en eins og þið kannski vissuð hefur hann þurft að sofa með öndunarvél út af kæfisvefni og mjúkum brjóstkassa. Nú okkur fannst hann orðinn svo duglegur að við ákváðum fyrir nokkuð mörgum vikum auðvitað í samráði við lækni að prufa leyfa honum að sofa án vélarinnar og hefur það gengið vonum framar. Hann þurfti ekki einu sinni á henni að halda eftir tvær svæfingar sama daginn. Hann er orðinn svo rosa flottur og sterkur og styrkist alltaf meira og meira. 

Já það vildi nú líka svo til að Ásta og Arndís komu einmitt suður til okkar sama dag og Óli fór í aðgerðirnar sínar. Það var voða gott að hafa þær og mikið rosalega fannst henni frænku minni gaman að finna öll naglalökkin mín. 

Hvað haldið þið að drengurinn hafi svo gert í gærmorgun? Jú hann reif úr sér nýja fína blóðskilunarlegginn!!!!! Reyndar var hann nú á leið úr honum en mér fannst þetta alger óþarfi þar sem það átti nú að skoða þetta eftir helgi. Jebb gott fólk nú þarf að setja nýjan á mánudaginn. Róbert var nú að velta því fyrir sér hvort Óli fengi ekki verðlaun frá sjúkrahúsinu þegar hann næði 20 aðgerðum. 

Svo er mamma að koma á þriðjudaginn og ætlar að vera hjá okkur fram á fimmtudag. Ætli það verði nokkuð leiðinlegt. Er nokkuð viss um að Óli á eftir að fá smá dekur. 
Já gott fólk svo lofaði ég henni hjálpartækja óðu systir minni að setja inn myndir af Óla í standbekknum og löbbunni en það kallar hann göngugrindina sína. Árný mín þú verður að bíða aðeins eftir myndunum vonandi koma þær næst.
kveðja Ásrún

04.10.2011 18:15

Ótitlað

Jæja jæja ætli það sé ekki kominn tími á fréttir emoticon

Það hefur nú ýmislegt gerst hjá okkur. Alls konar sýkingar og skemmtileg heit verið í gangi hjá okkur öllum en allir orðnir hressir núna. Já það hefur gengið á ýmsu með þessa yndislegu blóðskilunarleggi en það er búið að skipta um legg einu sinni enn emoticonÞað gekk alveg ljómandi vel að skipta en nýji leggurinn er ekkert mikið betri en sá gamli því nú #$%$#$$% verr og miður emoticon Ég er orðin svolítið þreytt á þessu en "er á meðan er" er nýja mottóið mitt(smá Pollýönnu leikur í gangi). 

Já ég setti inn nýtt myndband af drengnum endilega kíkið á það. Er ansi hrædd um að ég verði nú að fara að huga að svona hlutum eins og barnalæsingum á skúffur og skápa og ýmislegt annað. Það er ekkert smá mikið sport að vera kominn með hjólastól og geta komist um sjálfur og skoðað heiminn alveg upp á nýtt. Þið getið ekki trúað því hvað þetta veitir honum mikið frelsi. Hann er eitt sólskinsbros drengurinn minn. Mesta sportið er nú að keyra á alla eins og sést á myndbandinu en hann brunaði beint á fæturna á mér og var ég næstum búin að missa vélina. Já gott fólk það er alveg yndislegt að fylgjast með honum núna. Honum fer svo mikið fram þroskalega séð og auðvitað lengist hann og þyngist. Hann talar alltaf meira og meira og um daginn var mér alveg nóg boðið og sagði "Róbert hvað?" Já hann Róbert minn talaði og talar ennþá svolítið mikið emoticon

Svo eru strákarnir mínir báðir nýbúnir að eiga afmæli. Róbert er orðinn 13 ára og á að fermast næsta vor. Ég segi nú bara hvað gerðist eiginlega? Er ég nógu gömul til að eiga svona gamalt barn? Hann stendur sig eins og hetja þessi elska. Núna er hann hjá okkur og ætlar að vera þar til á föstudaginn en þá er planið að fara norður í eitt 5 ára afmæli og eitt fertugs afmæli. Það verður bara stuð. Ætlum ekkert að stoppa á Akureyri þar sem hvorugt afmælanna eru þar. Svo varð Óli þriggja ára og auðvitað vorum við á sjúkrahúsinu þann dag en bara hálfan daginn. Yndislegu englarnir okkar á skilunardeildinni komu okkur skemmtilega á óvart. Þær voru með blöðrur, pakka og köku og svo var sunginn fyrir hann afmælissöngurinn. 

Jæja nú verð ég að rjúka kveð ykkur í bili Ásrún

10.08.2011 20:02

Ótitlað

HALLÓ HALLÓ

GÓÐAR FRÉTTIR emoticon
Við fengum svaka skemmtilegar og góðar fréttir frá Svíþjóð. Þeir segja að það sé hægt að setja nýra í drenginn bæði uppá plássið að gera og æðatengingu og þvagútskilnað emoticon Já elskurnar mínar þeir segja líka að það sé hægt með LIFANDI GJAFA emoticon Vá hve klikkaður er maður eiginlega að segja að það séu góðar fréttir að barnið manns komist í stóra aðgerð emoticon En hvað um það vonandi gengur þetta bara svaka vel. Það eru nú ekki komnar neinar dagsetningar enda á eftir að finna gjafa handa drengnum og allt það. Við Óskar getum ekki gefið honum nýra af mismunandi ástæðum emoticonen við erum vonandi svo ríka að eiga ættingja og eða vini sem gætu hugsað sér að hjálpa drengnum okkar. Mamma og Árný eru að fara í prufur og vonandi gengur það vel. 
Já gott fólk svona er nú staðan í dag. Við erum voða ánægð enda skiptir þetta heilmiklu máli fyrir drenginn okkar. Já ég bara varð að henda þessu hérna inn fyrir ykkur elskurnar mínar ég veit nefnilega að mörg ykkar hafa beðið með öndina í hálsinum jafn lengi og við eftir þessum fréttum emoticon
Bestu kveðjur Ásrún

P.S. tvö blogg á fjórum dögum hlýtur að teljast nokkuð gott Hanna emoticon

06.08.2011 11:31

Ótitlað

Sæl öll

Af okkur er allt gott að frétta. Við erum enn að bíða eftir niðurstöðum frá Svíþjóð en þeir þurfa víst líka sumarfrí emoticon 
Já Óli er að æfa sig í að standa emoticon Hann er með svona flottan stand og er hann líka svaka ánægður með hann. Það er til fullt af myndum af honum í honum en ég set þær inn seinna. 
Það hefur verið nóg að gera hjá okkur í sumar. Ættarmót um versló og þar var sko gaman emoticonDrengurinn var sko ekkert til í að hvíla sig of mikið þar. Svo brugðum við okkur í eina stutta útilegu í Húsafell. Svo hefur verið fullt af fólki að heimsækja okkur núna er tengdamamma til dæmis í heimsókn. Brynja mágkona kom um daginn og Óli sagði "Brynja farin" í heila viku. Mamma, Árný og krakkarnir á leiðinni og hún Hulda mín líka. Það er nóg að gera hjá okkur. Við förum alltaf þrisvar í viku á sjúkrahúsið í blóðskilun og sjúkraþjálfun alltaf sama rútínan hjá okkur. 

Róbert er hjá okkur núna emoticon Það þykir okkur ekkert slæmt. Hann hefur stækkað aðeins of mikið á þessu ári drengurinn. Hann fer alveg að verða hærri en ég emoticon sumir vilja nú meina að það hafi nú þegar gerst en kommon fólk leyfið þið mér að halda annað emoticon Æi já tíminn líður alltof hratt. Það á að ferma drenginn 21.apríl 2012 og ég get sko sagt ykkur það að ég skila Ólafi Karli ef hann verður ekki til friðs þann dag. Ég held að bróðir hans eigi sko fyllilega skilið að hafa fermingardaginn sinn fyrir sig. Róbert er ennþá fúll útaf afmælisdeginum sínum 2009 en þá þurfti endilega að setja gastróstómíuna hjá Óla. Ekki að það væri ekki kærkomið að sleppa við magasonduna heldur fannst honum nú alger óþarfi að gera aðgerðina á afmælisdeginum sínum. 

Ég sótti um í Rjóðrinu fyrir Óla og fer hann bráðum að byrja þar. Honum leist nú ekkert illa á það þegar við fórum í heimsókn en ætli þetta verði ekki erfiðara fyrir mig fyrst. Rjóður er hvíldar og endurhæfingarheimili fyrir langveik og fötluð börn og þau sem eru að jafna sig eftir alvarleg slys bara svona ef þið vissuð það ekki emoticon
Jæja nú segi ég þetta ágætt í bili
Kv Ásrún

10.06.2011 15:02

Ótitlað

Hej!

Við höfum haft það voða gott hérna í Gautaborg. Að minnsta kosti svona miðað við það að hanga inn á sjúkrahúsi og bíða eftir læknum og rannsóknum en enn sem komið er hefur allt gengið ljómandi vel. Óli hefur fengið sínar blóðskilanir og hafa þær gengið alveg ljómandi vel. Það verður nú að segjast alveg eins og er að öll aðstaða hér á skilunardeildinni er mikið betri en heima alla vega hvað börn varðar. Það eru nú alls ekki mörg börn hér í blóðskilun ekki frekar en heima. Allt starfsfólkið á skilunardeildinni er mjög gott og hefur reynst okkur vel já bara alveg eins og þau heima á LSH. Ég verð nú að hrósa stelpunum heima þær eru alveg yndislegar og hafa reynst okkur ótrúlega vel. Það er svo mikið auðveldara að vera í svona aðstæðum með gott fólk með sér og stelpurnar á skilunardeildinni heima eru algjörar perlur emoticon Það sem mestu skiptir er náttúrulega að drengnum líði vel og honum finnist það ekki vera algjör kvöl og pína að fara í blóðskilun en eins og staðan hefur verið þá er þetta með því skemmtilegasta sem drengurinn gerir og það er allt stelpunum á skilun að þakka. Honum finnst fátt skemmtilegra en að henda dótinu og segja svo að Sif banni það eða syngja með henni og dansa. Öllu elskar drengurinn alveg út af lífinu alveg enda er alveg eins og hún sé amma hans og alltaf er það hún sem hann vill kyssaemoticon bless. Um daginn var hún í smá fríi og allan tímann var hann að spyrja eftir henni emoticon Svo er það hún Kristín vinkona hans emoticon það sem þau geta hlegið saman það er alveg yndislegt að heyra til þeirra. Já og svo má nú alls ekki gleyma Guðrúnu "frænku" emoticonhún sem mátti halda á honum eins og hann væri smábarn emoticon
Svo eru allar hinar sem ég nenni ekki að telja upp en eru algjörar perlur. Bestu þakkir til ykkar stelpur og við erum spennt að hitta ykkur þegar við komum heim. 

Jæja aftur að Göteborg. 

Já það hefur svo sem verið nóg að gera hér en eins og sumir kannski vita þá einkennist sjúkrahúsvist svolítið mikið af BIÐ. En hér erum við búin að vera í nokkurs konar einangrun þar sem við erum útlendingarnir. Þetta er bara alveg eins og á Íslandi þegar þangað koma útlendingar það eru allir hræddir við MRSA eða Mósa. Þannig að það voru tekin nokkuð mörg stroksýni af drengnum sem reyndust nú flest neikvæð sem betur fer en þetta er bara regla á öllum sjúkrahúsum.  

Við höfum hitt nokkra lækna þar á meðal hittum við hann Bill sem er lungnasérfræðingur. Okkur hefur nú fundist það nokkuð fyndið hvað þeim virðist öllum mikið létt loksins þegar þeir sjá drenginn en sú mynd sem þeir hafa af honum er síðan hann var hvað veikastur. Við sáum Bill nánast lippast niður af feginleik þegar hann sá drenginn fyrst. Lungnamyndin sem hann hafði af honum var síðan í nóvember-desember í fyrra og á henni er hægra lungað alveg hvítt eða samfallið og ekkert loft kemst niður. Óli var nú reyndar sofandi á meðan hann var svona aðeins að skoða hann og hlusta en hann var heldur ekkert að kippa sér neitt upp við að ókunnugur hvítklæddur maður væri að skoða hann þegar hann vaknaði. Bill vildi endilega að við svæfum eina nótt á sjúkrahúsinu sem við og gerðum. Það átti nefnilega að fylgjast með súrefnismettuninni og taka blóðgös um miðja nótt og helst átti drengurinn að sofa við það og auðvitað gerði hann það. Það sem mér fannst mjög skrítið er að hérna komu þær bara inn á herbergi á klukkutíma fresti í alla nótt og mældu mettunina hjá honum en heima eru þau nú bara tengd við mónitor og fylgst með þeim alla nóttina. 
Jæja drengurinn fór svo í segulómun í gær og gekk hún mjög vel. Myndin virðist svona í fljótu bragði vera mikið betri en sú sem var tekin heima síðast. Við erum nú ekki búin að fá endanlegar niðurstöður úr myndinni en það er svona það sem við vorum hvað spenntust fyrir. Hún á nefnilega að segja til um það hvort það sé hægt að græða nýtt nýra í Óla. Æi já best að segja sem minnst um það í bili. Þið fáið þær fréttir bara seinna. 

Það hefur verið fínasta veður hérna en það hefur verið freka heitt og rakt kannski ekki mikil sól en það er svo sem allt í lagi. Í gær rigndi svo en samt var fimmtán stiga hiti og varð mér þá hugsað til
 hennar Lindu minnar. Það sem hún hefði haft gaman af að fara út að labba í þessari rigningu emoticon
Jæja segi þetta nú gott í bili 
Hejda
Ásrún

08.06.2011 18:14

Ótitlað

Halló halló

Byrjum á föstudeginum síðasta emoticon
Það var nú þannig að blóðskilunarleggurinn hans Óla var með leiðindi emoticon já það er aldrei friður með þessa leggi. En í þetta skipti þurfti nú ekki að skipta um legg sem betur fer emoticonDrengurinn brá sér í heimsókn til hans Davíðs svæfingarlæknis í Fossvoginum og reyndar einhvern röntgenlækni sem þræddi inn í bláæðakerfið í drengnum og hreinsaði legginn og hefur hann verið mjög fínn síðan emoticon Já hann var fljótur að jafna sig eftir þessa svæfingu og vorum við komin heim fyrir kvöldmat SAMDÆGURS gott fólk. Það var ákveðið að drífa bara í að hreinsa legginn vegna þess að það vildi enginn senda hann til Gautaborgar með hálf stíflaðan legg. Þá komum við að næsta dagskrárlið.

Við komum til Gautaborgar í gær eftir langt ferðalag jaaa að minnsta kosti ef þið spyrjið mig. Við þurftum að millilenda í Kaupmannahöfn en beint flug til Gautaborgar byrjar ekki fyrr en 25.júní næstkomandi. Óli var svo flottur og fínn í fluginu enda hafði ein flugfreyja það að orði að hann væri svo stilltur og góður. Hann heldur uppteknum hætti og bræðir mörg hjörtu hvert sem hann kemur og þessar 35 mínútur sem flugið frá Köben til Gautaborgar tók náði hann nokkrum farþeganna með sér í leik og flugfreyjunum líka emoticon

Þegar við vorum búin að koma okkur nokkuð vel fyrir í Ronald MacDonald Hus og ég svona aðeins að fríska upp á mig fórum við yfir á spítalann til að láta innrita drenginn en það tók okkur um það bil 2 mínútur að labba yfir. Þar hittum við lækni sem innritaði drenginn og sætustu hjúkku sem ég hef séð emoticon Það er nú kannski svolítið hallærislegt að kalla hann Daniel hjúkku en það sem drengurinn er myndarlegur. Ég er alveg viss um að ef hann ynni á Hringnum þá sæjust aldrei neinar mömmur ógreiddar og á náttfötunum á göngunum meðan hann væri á vakt elskurnar mínar. 
Jæja nú kallar einhver lítill drengur á mömmu sína svo ég segi þetta gott í bili.
Bestu sumarkveðjur úr hitanum í Gautaborg 
Ásrún

24.05.2011 16:44

Ótitlað

Jesús minn eruð þið ekkert að grínast með bloggletina mína emoticon
Jæja hann Ólafur Karl eins og hann vill nú endilega láta kalla sig þessa dagana en hinn hressasti þrátt fyrir mikið ójafnvægi á kalsíumbúskapnum. Já gott fólk blóðprufurnar hans hafa ekki verið neitt nema rauðar tölur og einhver myndi nú halda að það ætti kannski bara að vera svoleiðis þar sem þetta eru jú BLÓÐprufur en svo er nú aldeilis ekki emoticon Drengurinn er búinn að vera með bæði of mikið og of lítið af kalsíum (kalki) í blóðinu og fosfatið,kolsýran já og hemóglóbínið og öll hin söltin sem ég get ekki alveg munað hvað heita þetta hefur allt verið í einhverju rugli og enginn veit af hverju. Þetta er sem sagt það sem við höfum verið að glíma við síðustu 3-4 vikurnar og er ekki ennþá búið að sjá fyrir endann á því.
 
Ólafur Karl er búinn að fá nýjan blóðskilunarlegg en ætli það sé ekki kominn eins og mánuður síðan það var gert en það gekk eins og í LYGASÖGU gott fólk emoticon Ekkert hjartastopp eða öndunarfæravesen og drengurinn var sendur á VÖKNUN ég segi það svo satt. Það hefur ekki komið fyrir í langan langan tíma en mikið rosalega var það gott og mikill léttir fyrir okkur foreldrana að það gekk svona vel. Hann eyddi meira að segja nótt á gjörgæslunni í Fossvogi eftir nefkirtlatökuna emoticon

Við erum á leið til Svíþjóðar núna í júní. Búin að bóka flugið meira að segja. Stefnan er tekin á Gautaborg nánar tiltekið á Sahlgrenska sjúkrahúsið. Þar á að pikka og pota í drenginn emoticon nei nei en hann á náttúrulega að fara í rannsóknir og auðvitað blóðskilunina sína. Það stendur til að senda hann í segulómun og svæfingu fyrir það, svo þarf hann að fara í blöðruþrýstingsmælingu og eitthvað fleira. Við þurfum að hitta FULLT af læknum eins og ígræðsluskurðlæknana,svæfingarlækni,nýrnasérfræðing og lungnasérfræðing og ég er pottþétt að gleyma einhverjum núna. Svo er bara að vona að eldgosið verði til friðs svona rétt á meðan við erum á ferðinni emoticon Það verður aldeilis gaman að ferðast með Óla þar sem hann er með algjöra véladellu. Ef það gengur fyrir vél þá er það áhugavert emoticon
Annars er bara allt gott að frétta af okkur. Nú bíð ég bara eftir Róbert mínum en hann ætlar að koma til okkar eftir að við erum komin heim frá Svíþjóð. Hann er víst búinn að ráða sig í vinnu þangað til þannig að það er eins gott að hann standi við það ekki satt Ásta? emoticon
Jæja segi þetta gott í dag
kv Ásrún

15.03.2011 09:58

Ótitlað

Halló halló

Nú er vika síðan drengurinn útskrifaðist af sjúkrahúsinu. Hann er orðinn eins og hann á að sér að vera ýmist að springa úr frekju eða glaður og kátur emoticon
Það gengur vel með nýja legginn svona fyrir utan smá sár sem hann fékk undan honum en núna lítur það víst vel út.
Róbert var hjá okkur í vetrarfríinu í síðustu viku. Já það leiddist okkur ekki neitt enda löngu kominn tími til að hann kæmi suður í heimsókn. Við viljum auðvitað hafa hann alltaf en eins og staðan er í dag er það ekki alveg það besta fyrir hann sjálfan. Tölum um eitthvað annað áður en ég fer aftur og enn að grenja af því ég sakna hans agalega mikið emoticon
Pabbi,mamma og amma komu líka suður með Róbert. Alltaf gott að hitta fólkið sitt.
Rúnar frændi kom í heimsókn í gær þar sem hann var veðurtepptur í borginni. Nú bara bíð ég eftir að Árný komi suður í verknám. Hún verður á LSH við Hringbraut í fjórar vikur en ég vil meina að hún verði þar í fimm vikur þar sem hún kemur ekki til með að rata út af sjúkrahúsinu emoticon Annars voru þær mæðgur Árný og Hrenfa hjá okkur eina helgi um daginn einmitt þegar Óli var á sjúkrahúsinu. Hrefna var ægilega ánægð með að fá að hitta hann og leika svolítið við hann. Hann var nú svolítið feiminn fyrst þegar þær komu. Hann lá upp í rúmi og klemmdi aftur augun og ríghélt í hendina á pabba sínum og svo steinsofnaði hann bara emoticon En það var nú annað uppi á teningnum næst þegar hann hitti þær þá var bara galað "ANNÝ" og brosað út að eyrum emoticon Hrefna teiknaði mynd af sér handa honum svo hann myndi ekki gleyma henni emoticon Bræður hennar voru nú báðir í borginni en þar sem þeir voru með hálsbólgu og kvef fengu þeir ekki að hitta Óla. Svo var alveg nóg að gera hjá þeim báðum. Baldur lét nú kvefið ekki stoppa sig á sundmótinu og stóð sig frábærlega emoticon Hersteinn var á Samfés og skákmóti og eitthvað meira og meira alltaf nóg að gera hjá honum. Það var nú svolítið fúlt að hitta þá ekki en það verður bara næst.
Jæja nú er víst kominn tími á Latabæ segir Óli. Það er nú alltaf að bætast meira við orðaforðann hjá drengnum enda bara gott mál.

kv Ásrún

03.03.2011 16:32

Ótitlað

Sælt veri fólkið
Þá erum við komin í rólegheitin á barnadeildinni emoticon en það var nú ekki fyrr en í dag. Jebb hann Ólafur Karl er með samfall á hægra lunga og kom það í ljós á lungnamyndinni sem var tekin af honum í gær. Við því er tvennt hægt að gera, annað hvort svæfa sjúklinginn og berkjuspegla hann eða setja hann á bipap vél og sjá svo hvort hún nái ekki að blása lungað aðeins upp. Drengurinn á svona bipap vél enda er hún einmitt notuð við kæfisvefni. Já hann var sem sagt settur fast á vélina sína í gær og allir krosslögðu fingurna og vonuðu að það myndi ganga enda fáir sem vilja orðið svæfa drenginn emoticon Sem betur fer ákvað hann nú einu sinni að gera okkur til hæfis og var lungnamyndin betri í dag emoticon Nú vonum við að hann haldi bara áfram á þessari leið og jafni sig á þessu.
Æi já hann heldur manni óneitanlega við efnið drengurinn. Nú er hann aldeilis búinn að fá Viðar til að klóra sér í höfðinu enda setti þetta bakslag öll plön í uppnám. Næsta mál er að ná áttum og gera ný plön ekki satt?
Jæja þá er drengurinn vaknaður og best að sinna honum enda er hann EKKI þekktur fyrir þolinmæði þessi elska emoticon
kv Ásrún

01.03.2011 23:17

Ótitlað

Jæja gott fólk þá hefst sagan!!!!!
Það er einbeittur og yfirlýstur vilji Ólafs Karls að drepa foreldra sína og helst nokkra heilbrigðisstarfsmenn í leiðinni. Jebb við fórum með drenginn á sjúkrahúsið í gærmorgun og notuðum tækifærið á meðan við biðum eftir að Óli kæmist í aðgerðina og hittum Gylfa hjartalækni sem ómskoðaði hjartað hans Óla. Hann var mjög ánægður með hann. Svo fór hann líka í hjartalínurit sem kom vel út. Þessar rannsóknir voru fyrirskipaðar af Viðari enda þarf að uppfylla ansi mörg skilyrði fyrir ígræðslu. Hvað um það svo fór drengurinn í aðgerðina sem átti bara að vera smá svona að skipta um legg. Við héldum að það yrði mesta málið að koma leggnum fyrir þar sem hann hefur alltaf verið frekar erfiður svona æðalega séð en annað kom nú á daginn. Læknarnir halda að það hafi komist loftbóla með leggnum inn í æðina sem orsakaði blóðþrýstingsfall og næstum því hjartastopp hjá drengnum. Sem betur fer tókst læknunum að ná drengnum nokkuð stöðugum og svo var hann fluttur á gjörgæsluna þar sem hann er enn. Hann var auðvitað inntúberaður já sem sagt tengdur við öndunarvél en hann vaknaði nú upp í gærkvöldi og reyndi að rífast við hjúkrunarfræðingana og kyssti voffann sinn og knúsaði. Hann var svo tekinn af öndunarvélinni í morgun og ennþá hefur allt gengið nokkuð vel. Hann er ansi bólginn í hálsinum og rámur og fær hann lyf við því. Nú bara vonum við að hann verði útskrifaður af gjörgæslu á morgun eins og planið er.
Kannski er þetta svolítið ruglingslegt hjá mér en ég bæti þá úr því seinna og kannski set ég aðeins betri greinagerð hér inn. Núna er ég drulluþreytt og að deyja úr kulda og ætla því að drífa mig í háttinn gott fólk.
kv Ásrún

25.02.2011 14:07

Ótitlað

Halló halló
Jæja þá eru það nýjustu fréttir.
Óli er alltaf að styrkjast og læra eitthvað nýtt. Núna hermir hann allt eftir manni og lærir mörg ný orð. Hann er voðalega duglegur í blóðskilun og leiðist það ekkert mikið að hafa hóp af konum til að stjana við sig. Nú hann hefur alltaf ákveðnar skoðanir og er ekkert hræddur við að láta þær í ljós. Já og hann er nú byrjaður að hitta þroskaþjálfa. Honum leiddist það nú ekki skal ég segja ykkur emoticon Hún átti svo mikið af flottu dóti sem hann vildi endilega skoða. Hann var nú ekki endilega til í að fara eftir tímann en hann fékk nú ekki að ráða. Það hefur komið æ betur í ljós hvað krakkinn er harður af sér. Hann er því miður vanur líkamlegum óþægindum og harkar ansi margt af sér ef honum þóknast það.
Svo er blóðskilunarleggurinn að detta úr krakkanum emoticon Já ég segi það satt!!!! En það stendur nú til bóta. Það á að skipta um legg strax á mánudaginn svo það verður ein enn aðgerðin. Já gott fólk það er eins og rólegheita tíminn okkar sé liðinn að minnsta kosti í bili.
Segi þetta gott í bili en set inn fréttir í næstu viku eftir aðgerðina.
Kv Ásrún

01.02.2011 16:09

Ótitlað

Sæl
Það var alveg yndislegt að skreppa aðeins norður og knúsa Róbert já og hitta fólkið sitt emoticon Ég varð bara aðeins eirðarlaus af því mér fannst ég ekkert hafa að gera. Róbert vill meina að hann geti alveg brytjað matinn sinn sjálfur og hellt í glasið sitt og annað slíkt. Já já ég átti alveg skilið hneykslunartóninn og augnaráðið sem hann sendi mér. Honum fannst ég bara ekkert sniðug emoticon
Af Óla er allt gott að frétta bara smá hornös að ergja hann. Það var nú einmitt hennar vegna sem við fórum ekki á leikstofuna í morgun til að sjá trúðinn dr. Oliver. Ekki viljum við smita krakkana sem alls ekki mega við smá kvefi. Óli fór og hitti Sigurveigu á föstudaginn síðasta. Hún var alveg sátt,ekki himinlifandi en sátt við mjöðmina og beinin hans. Hryggskekkjan hefur aukist um 15%
en mér skilst að það sé ekkert til að stressa sig yfir alveg strax.
Já ég setti inn nokkrar myndir af Óla í blóðskiluninni og eins og þið sjáið þá er það ekkert voðalega leiðinlegt.
Nú er Óskar farinn að vinna aftur LOKSINS!!!!!!!! Hljómar vel ekki satt? emoticon Nei enda er þetta ekki meint þannig. Hann var orðinn hundleiður á að hanga heima og "gera ekki neitt". Enda búinn að vera í veikindafríi vegna Óla síðan í október. Já maður þarf heldur betur að venjast því að vera heima með Óla og hef ég haft mun lengir tíma til þess en hann. Það er svo asnalegt að þurfa að venjast því að vera ekki lengur úti á vinnumarkaðinum en svoleiðis er það bara. Það er ekki það að við höfum ekki haft neitt að gera enda heilmikil umönnun sem fylgir Óla mínum. Ég hef ekki lengur tölu á þeim skiptum sem einhver hefur spurt mig:"Ertu BARA heimavinnandi?" Nú spyr ég á móti:"Hvað í fjandanum þýðir þetta BARA?" Persónulega hef ég aldrei haft eins mikið að gera og hef ég þurft að læra ansi mikið síðan Óli fæddist. Er til dæmis komin með ansi mikla sérhæfða verkkunnáttu í hjúkrun og ég sem ætlaði aldrei að verða hjúkrunarkona emoticon Já ég er BARA heimavinnandi húsmóðir,hjúkrunarkona,sjúkraþjálfari,iðjuþjálfi,eldabuska,ræstitæknir,þvottakona,mamma,kærasta,systir,dóttir,vinkona og margt margt fleira!!!!!!!

kveð ykkur á þessum nótum enda trúi ég því að mér sé alveg heimilt að kvarta aðeins yfir fordómum í þjóðfélaginu okkar.
 kv Ásrún
  • 1
Flettingar í dag: 15
Gestir í dag: 7
Flettingar í gær: 19
Gestir í gær: 11
Samtals flettingar: 47463
Samtals gestir: 20622
Tölur uppfærðar: 28.1.2012 16:42:44

Vafraðu um

HETJAN HANN ÓLAFUR KARL

Nafn:

Ólafur Karl Óskarsson

MSN netfang:

asrun77@hotmail.com

Afmælisdagur:

23. september

Staðsetning:

Akureyri

Faðir:

Óskar Árnason

Móðir:

Ásrún Hersteinsdóttir

Um:

fæddist með vacterl association sem eru margvíslegir fæðingargallar.Er með eitt nýra,engan endaþarm(colostoma),þrönga þvagrás(ureostoma),hægri mjöðmin er úr lið,of mörg rifbein hægra megin,klumbufótarlíki á hægra fæti og með afmyndun á hryggjarliðum frá spjaldhrygg og niður.

Tenglar